Lífið í France
Prinsinn okkar
22.12.2006 00:56:52 / heimirarnason

Kominn heim

Eins og flestir vita er ég nú fluttur heim. Þannig að þið sem eruð svo elskuleg að kíkja ennþá á þetta blogg, verð ég að tilkynna ykkur það að ég er hér með hættur að blogga. Þetta hefur verið yndislegur tími að blogga en allt gott tekur einhvern tímann enda. Að sjálfsögðu erum við ennþá með barnalandssíðuna og koma nýjar myndir inn fljótlega. Kveðja Heimir og Martha

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 13:27:30 / martha

Allt í blóma

Jæja nú er kallinn orðin sex daga gamall og er orðin alveg svaka kappi:) Hann er búinn að fara í sitt fyrsta bað og á greinilega eftir að verða mikill sundkappi eins og pabbi sinn :lol: En annars gengur allt bara alveg eins og í sögu, litli sefur bara og drekkur og er ekkert smá góður:lol: Hann var að vísu orðin pínu gulur á mánudagskvöldið og við þurftum því að fara með hann upp á spítala og var hann settur í svona ljósakassa í 20 klst. Okkur fannst þetta alveg svakalega erfitt en litla stóð sig eins og hetja;) Hérna eru tvær myndir af honum í kassanum, algjör mús 

Hérna er mynd af litla stubb í 27 ára gamalli treyju af Pabba sínum, ætlum að skanna myndina af Heimi í þessari treyju því að þeir eru nákvæmlega eins, greinilegt að stubbur verður myndalegur eins og pabbi sinn8|

Fleiri myndir eru svo inn á síðunni hjá litla stubb: http://krusliliusheimis.barnaland.is/

kveðja Martha, Heimir og litli mann


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 11:22:12 / heimirarnason

Myndir

Það eru komnar nýjar myndir af krílinu. Nóttin gekk bara vel og svaf drengurinn vel sínu fyrstu nótt hjá Ömmu og Afa. Biðjum innilega að heilsa Heimir, Martha og Drengur Heimisson.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 21:05:36 / heimirarnason

Krúsílíus Heimisson

Hann er mættur á svæðið, yndislegi prinsinn okkar kom í nótt klukkan 00:11. Hann var 13 merkur og 49 cm. Mömmu og barni líður ekkert smá vel og gekk fæðingin mjög vel. Pabbinn er ekkert lítið stoltur og að sjálfsögðu var hann kominn heim í tæka tíð. Við erum með barnalandssíðu: http://krusliliusheimis.barnaland.is/. Við erum reyndar í smá vandræðum tókum alveg milljón myndir í dag en myndavélin er batteríslaus og hleðslutækið finnst ekki eins og er, týpískt. En það reddast á morgunn, að lokum viljum við þakka ykkur fyrir allar þessar yndislegu kveðjur.

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 11:31:27 / heimirarnason

Ein stutt

Nú er ég að fara skella mér til Íslands. Það er ekki langt í þetta ó nei á flug næsta mánudag og gæti jafnvel komið heim fyrr. Spenningurinn er óbærilegur og maður hugsar nú um lítið annað þessa daganna. Þetta var róleg helgi hjá kallinum á meðan mínir menn voru í Zagreb. Það var reyndar hringt í mig á föstudaginn og spurt hvort ég gæti í spilað með varaliði Bjerringbro sem eru víst í toppbaráttu i 2.deild. Ég var alveg til í það að spila nokkrar mínútur, maður er nú ekki í sínu besta formi. Annars til að gera langa sögu stutta bjóst ég við svona æfingaleiks fýlingu en það var aldeilis ekki og það var fullt af fólki að horfa 300-400 manns og hörkustemning. Við reyndar töpuðum leiknum, en mér tókst að setja nokkur mörk og var tekinn úr umferð allan seinni hálfleik, mjög fyndið.

Annars er Jóla Tuborg mættur á svæðið og ekki er hann dýr :)  Einnig var ég gríðarlega ánægður þegar ég las aftan á dósina og sá þar ,,fedt" 0 gr. Þannig að hann getur ekki verið fitandi :)


» 41 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 21:16:53 / heimirarnason

Síðast en ekki síst

Þá er síðustu heimsókninni á árinu lokið og var hún ekki af verri endanum. Gáki bróðir, Rósa systir, Gunni og Sissi frændur og Elísabet kærasta Gunna komu og voru heila viku hérna í Dk. Eins og alltaf er maður frekar seinn í snúningum við að skrifa þessi blogg en ég var búinn að vara ykkur við. Það var alveg frábært að fá þau öll í heimsókn og skemmtum við okkur alveg konunglega. Ég ætla að reyna að segja frá því helsta sem gerðist og ef ég gleymi einhverju þá verður því bætt við næst. Ég verð að byrja að segja ykkur frá Go-kartinu sem við fórum í, þvílík snilld. Það er staðsett rétt hjá Árhús og er víst stærsta Inn door go-kart í Evrópu. Jæja til að gera langa sögu stutta þá var nú bróðir minn að keyra best enda þaulvanur go-kart maður en ég var búinn að múta gaurunum sem vinna þarna og þeir settu því bestu tímann hjá mér í fyrri ferðinni, óskiljanlegt:D. En sú sem stal senunni að mínu mati var Rósa systir. Hún tók framúr kallinum í seinni ferðinni og ætlaði ég nú heldur betur að sýna litlu systur að hún væri nú ekkert að fara fá bílpróf alveg á næstunni, en nei nei hún keyrði ,,eins og enginn væri morgundagurinn” og ég einfaldlega náði henni ekki. Þetta endaði með því að ég snéri bílnum í hring og endaði því í neðsta sæti í seinni ferðinni. Bræðurnir stóðu sig einnig vel, en Gunni var að sína gríðarleg tilþrif á inn á milli. Hér fyrir neðan er smá sýnishorn af hvernig brautin leit út:

 

Á laugardagskvöldinu fórum ég og Gáki í liðspartý hjá liðinu mínu. Við vorum náttúrulega bara eins og venjulegir íslendingar og mættum ekkert fyrr en tíu eða hálf ellefu í partýið. Heima á Íslandi eru menn komnir vel í glas svona klukkan 11 eða 12 en hérna voru allir á rassgatinu þegar við mættum. Þetta var helvíti fínt partý og var boðið upp á endalaust af áfengi og voru menn duglegir að blanda öllu saman. Nokkrir Fylkismenn hefðu verið flottir í þessu partýi. Til dæmis var rosa stórt borð í stofunni tilvalið til að dansa á og svo var voðalega vinsælt að fá sér einn dry whisky eða vodka svona rétt áður menn kíktu í bæinn. Gáki var spurður svona 100 sinnum hvort hann spilaði ekki handbolta og hann svaraði alltaf, yes twenty years ago. Svo kíktum við aðeins í bæinn og fórum á heitasta stað bæjarins, en þar voru svona 500 manns of margir þannig að við bræðurnir fórum nú snemma heim þetta kvöldið. Ég verð nú að nefna að lokum að yfirvaraskeggið á Gáka var að slá í gegn og það er aldrei að vita nema að hann nái að toppa sjálfan kónginn Tom Selleck í framtíðinni.

Matur ferðarinnar: Já þið giskuðuð rétt Mr. Bbq Rif. Það var þrisvar fengið sér rif í ferðinni og eru þessu blessuðu rif að slá í gegn hér í Silkeborginni. Það er reyndar skömm að segja frá því að einhvern veginn þá náðum við aldrei að fara á ,,all you can eat” sem er algjör synd því Gunni var gríðarlega sterkur kandídat í að slá metið, hann borðar eins og hestur strákurinn.

Því miður þá var ekkert verslað í ferðinni :D

Ég ætla að segja þetta gott en ég veit að það er eitthvað sem ég er að gleyma og ég bæti því bara við ferðasöguna as soon as possible. En setti myndir frá ferðinni inn hérna til vinstri undir "frændsystkinaferð". Varðandi mig persónulega þá bíð ég bara við símann þangað til að ástin mín hringir og er ég búinn að hækka hringunguna í símanum um helming. Það styttist í þetta og það er óhætt að segja að maður hefur aldrei verið eins spenntur á ævinni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 23:09:06 / martha

Styttist.....

úff þetta má nú alveg fara að enda, komin smá þreyta í mannskapinn;) en stakk inn nýjustu bumbumyndunum og eins og þið sjáið er maður orðin andskoti bústin

Annars gengur allt bara svaka vel bara nóg að gera þannig að ég er orðin dáltið þreytt, enda bara 3 vikur eftir (má nú samt alveg koma fyrr). Fer að minnka við mig í skólanum í næstu viku þannig að ég get farið að hvíla mig og undirbúa mig undir átökin8|  Ég auglýsi nú kannski bara eftir einhverjum til að nudda á mér bakið og kannski tærnar í leiðinni, verð nú að segja að Heimir sleppur nú nokkuð vel frá þessu:lol: (finnst nú að Arnar eigi að taka þetta að sér er það ekki????)

En knús til allra og þá sérstaklega eitt risa knús til silkeborgar, þín er sárt saknað ástin mín 

kveðja Martha og bumbulíus


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 18:03:03 / heimirarnason

Það kom að því

Það munar ekki um það bara kominn pressa frá mönnum að maður skrifi hér eitt gott blogg. Jæja maður má ekki bregðast aðdáendum sínum. Ef við byrjum á danska mixinu svona rétt fyrir Hlyn þá var rosalega útsala á Harboe mixi í Netto um daginn eða 24 flöskur á 39,90 danskar krónur sem gera 17 krónur flaskan,Gott tilboð allaveganna. Það styttist í það að maður komi heim Hlynur þannig að ég gæti nú alveg tekið eina flösku með heim og jafnvel eitt rif :) Svo er ég loksins búinn að finna einn stað sem er með heimsendingu hér í Silkeborg, the Chicago Roasthouse. Það vildi svo skemmtileg til að þeir voru með þessi fínu bbq svínarif á boðstólnum. En vandamálið var að það varð að panta mininum tvo skammta þannig að kallinn fékk 1000 grömm og fór létt með þetta.

Varðandi lyklana (sem að mér tókst að týna um daginn) þá hefur einhverjum dananum fundist svona gaman að eiga lykla af Volkswagen Boru því að það er ekki enn búið að skila lyklunum. Helvítis danske kanon:klikk: Það eru nú nokkur blogg síðan að ég lofaði að skrifa ekki meira um þennan blessaða hæl en menn eru víst að spyrja og hann er allur að koma til. Er búinn að hvíla í viku og ætla að hvíla í viku í viðbót svo helvítis hælinn verði nú einhver timann orðinn góður. En eins og þið sjáið er maður kannski ekki alveg í hollustunni þannig að maður er að verða helvíti þéttur hehe8)

Síðasta helgi var annars mjög góð. Fór til Árhús til að hitta Tedda góðvin minn og Auði kærustuna hans sem voru með mér út í Noregi. Auður er framkvæmdastjóri Gerplu og því var sjálfsögðu farið og kíkt á heimsmeistaramótið í fimleikum. Þar sá ég stærstu biceps vöðva í heimi ertu að grínast. Þetta var einhver rússa djöfull sem var að keppa á tvíslá og þegar kvikindið reyndi eitthvað á sig þá hélt ég að þessir 100 cm sinnum 100 cm biceps myndu springa. En þetta var annars rosa upplifun að sjá þessi undrabörn í fimleikum. Hvaða heilvita maður fer þrefalt heljarstökk og ætlar síðan bara að lenda á löppunum, jú jú þessir menn. Það styttist nú í stærstu heimsóknina hingað til Gáki bróðir, Rósa systir, Sissi frændi, Gunni frændi og Elísabet kærasta hans eru að koma hérna næstu helgi. Þetta verður rosa stemning Gunni ætlar að fá að æfa með kallinum og því verður maður nú að vera góður í næstu viku. Það verður nú ekki flókið að skemmta Rósu og Elísubet því ég skutla þeim bara í verslunarmiðstöðina í Árhús og skil þær eftir:)

Annars eru mínir menn í Fylki að standa sig eins og hetjur það er sama hve margir meiðast eða fara í eitthvað miðlungslið í Þýskalandi :haha:þá koma þeir alltaf sterkir tilbaka. Bubbi hlýtur að hafa horft mikið á Elvis í vikunni því hann tók víst ekki nema 26 bolta kvikindið -það styttist í mig Bubbi minn. Addi psycho er víst að stjórna þessu eins og herforingi og frétti ég að hann væri gríðarlega ánægður með það að allir leikirnir eru á sunnudögum, svo hann fái nú að hvíla sig um helgar:D Bið ég að heilsa ykkur drengir.

Annars er allt gott að frétta að fallegu konunni minni og frumburðinum líður vel í Garðabænum. Það er farið að styttast alveg rosalega í þetta og maður er nú farinn að vera alveg óbærilega spenntur.

                         Kveðja Heimir Örn


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:39:32 / heimirarnason

Fy fan

Síðasta helgi og dagurinn í dag. Hvað get ég sagt elskurnar mínar sem lesa þetta blogg. Þetta á bara ekki að ganga upp þessi blessaði bolti hér í Danmörku. Var loksins kominn af stað og búinn að vera virkilega heitur á æfingum en allt kom fyrir ekki, já haldið ykkur fast þessi blessaði hæl er ónýtur, lenti eitthvað illa og allt orðið jafnslæmt og ég að fara í einhverja helvítis skönnun í vikunni. Nú er ég búinn að vera hérna í 3 mánuði og vera meiddur í 2. Þið verðið að afsaka mig að ég sé ekkert ógeðslega hress þessa daganna. Reyndar er maður fljótur að hressast þegar maður hugsar um framtíðina því maður er jú að fá erfingja fljótlega. Reyndar var helgin algjör snilld. Það var fríhelgi og eins og svo oft áður skellti ég mér í heimsókn til Villa og Vignis til Skjern. Ég var svo heppinn að það var einhver veisla fyrir liðið hjá stærsta sponsornum þeirra og fékk að fara með sem konan hans Vignis. Þar eftir var farið á þann fræga skemmtistað ,,Pakkhúsið”. Þar var gjörsamlega troðið og fólk þar inni var á öllum aldri, bland af Sjallanum og Oddvitanum. Það var alveg hrikalega góð stemning þarna inni, tveir kallar að spila á gítar og syngja.(kvöldið fær alveg 9 í einkunn). Daginn eftir átti ég alveg snilldar move og var að fikta eitthvað í útvarpinu hjá Villa. Það gekk ekki betur en svo að það festist á ON og því var ekki hægt að slökkva á því, þó að bílinn væri ekki í gangi. Þannig að Villi þurfti að rífa það úr til þess að yrði nú ekki í botni alla nóttina. Ég vil nota tækifærið og óska Gulla til hamingju með nýja liðið sitt. Ég skil reyndar ekkert í Alfreð að kaupa bara ekki allt Fylkisliðið og láta það standa vörnina og skipta síðan Gauja og þeim inn á í sóknina. Hann fattar þetta fyrr eða siðar. Ég lofa nú að koma með eitthvað skemmtilegra blogg næst og baráttu kveðjur til minna manna í Fylki.

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 10:16:57 / heimirarnason

Eitt það mesta ruglið

Þá er komið að því að skrifa um helgina og síðast en ekki síst gærdaginn. Jæja ég sótti Þóri og gamla á lestarstöðina í Silkeborg klukkan 18:00 á föstudagskvöld. Menn voru mjög svangir þannig að það var ákveðið að skella sér á "all you can eat”. Það er óhætt að segja að þetta einvígi var einstefna frá upphafi. Heimavöllurinn var það sterkur að Pabbi fór ekki einu sinni í einvígið og fékk sér bara danskt buff. Hann var reyndar með þá afsökun að þessi keppni væri ekkert spennandi því Siggi Indriða myndi rúlla yfir hana þegar hann kæmi eftir áramót. Ég var búinn að gleyma því hvað félaginn minn, the doktor er lengi að borða en eftir 40 mín var hann kominn með 0,9 rif ( stór rif reyndar) og vermir því næst neðsta sæti eftir Adda Sæ. Heimamaðurinn var því rólegur og tók tæp tvö rif og var rétt svo saddur.

Laugardagurinn: Æfing hjá mér, fékk að vita frá sjúkraþjálfaranum að ég eigi að hvíla 2-3 daga í viðbót, þannig að það var ekki leikur hjá mér um helgina. Í staðinn spiluðum við en meira golf. Á laugardeginum var skelfilegt veður og völlurinn rennandi. Spilamennskan skelfileg og þetta var bara ekki nógu gott. En maður reddaði deginum með því að hafa nautakjöt og bernaise um kvöldið sem heppnaðist mjög vel. Ég bauð þeim eldhressu hjónum Bjarna Ólafi og Beggu í mat og Bjarni spilaði með okkur golf alla helgina.

Sunnudagurinn: Það var snilldar golfferð, fórum á Silkeborgar völlinn sem er einn sá flottasti á landinu. Kom reyndar svakaleg rigning eftir tvær holur og leist manni ekki á blikuna en hún hætti og það var þurrt sem eftir var og 17 gráðu hiti. Eftir harða keppni stóð Þórir Sigmunds uppi sem sigurvegari og var að spila mjög vel seinni 9. Jú ef einhver sé að spá í því þá var ég á golfbíl. Fórum síðan á leikinn hjá mínu liði sem var á móti ungversku liði og verð ég að segja að þetta lið var skelfilegt. Enginn maður undir 20 sek í 100 m hlaupinu þannig að þetta var mjög öruggur sigur. Þannig að þetta var mjög fín helgi og því var bara eftir að skila gestunum heim.

Mánudagurinn frægi: Dagurinn byrjaði vel, ég vaknaði 7:00 og keyrði Pabba á lestarstöðina í Skanderborg. Það gekk allt vel og því var næst haldið til Árhús og Þórir ætlaði að versla aðeins áður en hann færi heim. Jæja ég átti að fara á æfingu hálf þrjú þannig að ég kíkti nú aðeins með honum. Síðan ætlaði ég bara að skilja Þóri eftir, því lestarstöðin er við hliðana á verslunarmiðstöðinni. Þá byrjaði hasarinn, ég sá nú að klukkan var orðinn svolítið margt best að drífa sig á æfingu og Þórir geymdi allt dótið sitt í bílnum ( flugmiða, vegabréf og fleira). Þá gerist það að lykilinn af bílnum er týndur, kallinn búinn að missa lykilinn einhver staðar í þessari risa verslunarmiðstöð. Ég og Þórir leitum að lyklinum út um allt en hann finnst ekki. Ég þurfti því að hringja í þjálfarann og segjast ekki komast á æfingu því ég væri fastur í Árhús, frábært. Það var nú minna vandamál því Þórir þurfti nú að ná fluginu og þurfti miðanna sína og fleira. Jæja ég hringdi í einhverja danska lyklaþjónustu sem opnar bíla og spurði hvort þeir gætu ekki komið. Það var No problem og þeir sögðust geta opnað nánast alla bíla. Það mætti þarna einn gamall dani sem talaði hraðari dönsku heldur en einfalda fittan hans Sigga Eggerts og ég skildi nú ekki mikið. Eftir 30 mín var hann búinn að prufa allt en þessi ákveðna týpa er víst með svona rosalega góða þjófavörn þannig að hann gat ekki opnað hann. Ég þurfti að borga honum 6000 kall bara fyrir að reyna, ekkert dýrara. Klukkan var nú orðinn þrjú og ég hafði því rúma tvo tíma til að drífa mig heim til Silkeborg og aftur til baka því Þórir varð að ná lestinni hálf sex. Back up plan: Ég tók því lestina til Silkeborg, hringdi í Beggu og Bjarna og þau biðu eftir mér á lestarstöðinni og ætluðu síðan að keyra mig heim og síðan til Árhús aftur. En þá var næsta stóra vandamál húsið mitt var læst og húslyklarnir á bíllyklinum sem var týndur. Þetta leit ekki vel út en eins og menn vita er ég rosalega liðugur og léttur á mér og gat því klifrað upp á aðra hæð og inn um svalahurðina sem var sem betur fer opinn. Þannig að ég komst inn til að ná í aukalykilinn og ég skellti mér aftur til Árhús með Bjarni og Beggu. Var kominn rúmlega 5 til Þóris þannig að þetta reddaðist allt saman og Þórir búinn að versla eins og vitlaus maður á meðan og hafði engar áhyggjur að kallinn myndi ekki redda þessu. Eftir allt saman var þetta snilldar helgi og vil ég þakka gestunum kærlega fyrir komuna. Einnig vil ég þakka Bjarna og Beggu fyrir ómetanlega hjálp á mánudeginum og þau eiga inni einn stóran greiða. Næst á dagskrá er leikur á miðvikudaginn og ótrúlegt en satt þá er ég væntanlega í hóp í þeim leik. Þangað til næst bið ég að heilsa öllum sem lesa þessa síðu.


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 18:57:37 / martha

crazy busy

Guð ég veit að það er alveg geggjað langt síðan ég skrifaði. Það er bara búið að vera svo svakalega mikið að gera hjá mér. Ég er byrjuð alveg á fullu í skólanum og er farin að heiman um 7:30 og kem svo ekki heim aftur fyrr en um 18, dáltið mikið enda er ég eiginlega alveg búin á því alltaf:) Ég er byrjuð að vinna með sjúklinga á fullu og bora og bora eins og ég eigi lífið að leysa, btw Arnar var sjúklingur nr 2 hjá mér, helv kaldur kallinn heheh:haha: Er svo líka með eina gamla krúttlega sem að ég er að smíða gervitennur í þannig að það er allt komið á fullt. Kristín var að taka af mér bumbumyndir og eins og þið sjáið þá er bumban orðin alveg svakalega myndaleg, hún stækkar og stækkar. Ég get sagt ykkur það að þetta er eins og að vera með medesen bolta framan á sér allan daginn, mjög góð æfing ha:evil:

Var saumó hjá okkur norðpanpíum í gær og var ég að taka mát af Nönnu og Siggu því að ég er farin að gera lýsingarskynnur til að lýsa tennurnar, þær verða aldeilis flottar. Er svo líka að fara að gera við Kristínu Brynju og haukastelpur um helgina.´Hér sjáiði mynd af okkur Siggu að taka mát, helv flottar

Annars er ég flutt til tengdó og það er sko algjört æði. Þau alveg dekra við mig og passa upp á að ég borði nú hollt og gott:D Þau eru alveg í startholunum að bruna með mig upp á spítala þegar að því kemur því að Heimir minn stekkur bara upp í fyrstu flugvél þegar hríðirnar byrja... En svo er líka þetta svakalega akureyringadjamm um helgina á hverfis og er orðið á götunni að þetta verða svakalegasta djamm ársins. Ég held að ég haldi mig nú bara heima, þó að maður sé nú dáltið spældur að missa af þessu.

En nú eru Árni og Þórir komnir út til Dk og veit ég ekki hvort að átkeppnin verður í kvöld eða annað kvöld. Ég tippa náttúrulega á minn mann og veit að hann heldur uppi heiðri familíunnar, koma svo heheh

En annars þangað til næst Martha


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 12:24:52 / heimirarnason

Aldrei verið

Já hvað getur maður sagt, ennþá er maður meiddur í hælnum og ég lofa því að þetta verður síðasta færslan mín um þennan djöfulsins hæll. Hef ekkert æft núna í tvær vikur og er að verða helvíti pirraður. En nóg um það, það er margt annað að gerast en þessi blessaði bolti. Heyrði í Arnóri í gær og hann var alveg í skýjunum karlinn. Eignaðist rosalega myndarleg strák og óska ég honum og Guðrúni enn og aftur til hamingju.

Pabbi og Þórir eru að koma í heimsókn um helgina. Skemmtileg blanda læknirinn og forsetinn og þeir ætla að sjálfsögðu að fá að spila golf um helgina. Ég get reyndar spilað golf en er eins versti öryrkji því ég þarf að vera á golfbíl allan tímann.

En stóra spurningin er hver vinnur einvígið á ,,all you can eat” um helgina heimamaðurinn, læknirinn eða forsetinn. Ég set könnun hér við hliðina og bið sem flesta að taka þátt.

Mér finnst ég vera að gleyma einhverju en það kemur þá bara næst , bið að heilsa heim.


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 11:43:29 / heimirarnason

Akkillesarhæl

Good morning vietnam. Já commentið hjá Sigga G er að hitta svona beint í mark þetta er akkillesarhæl minn, djöfulsins vitleysa. Það var leikur við Skjern í gær og kallinn en á meiðslalista út af þessum blessaða hæl. Ég horfði á mína menn spila við litlu strákanna í Skjern þá Villa, Vigni, Nonna og svo er einhver Madsen þarna pínulítill líka. Þjálfarinn fannst besta lausnin að spila bara 6-0 á móti þessum stubbum og þeir áttu ekki breik. Leikurinn endaði 32-25 og voru það sanngjörn úrslit.

En þrátt fyrir þessi leiðindi að vera ekki að spila bolta eins og er þá er alltaf fínt að kíkja á strákanna í Skjern. Ég ákvað að vera eftir að gista hjá Villa og við spiluðum poker langt fram á nótt. Annað skiptið í röð fer ég ríkari heim og vil ég þakka Vigni fyrir þennan góða bensínstyrk.

Ég mun væntanlega ekkert blogga fyrr en eftir helgi því ég er að fara til Ungverjalands um helgina. Fer á æfingu í dag og get ekki beðið eftir upphituninni, er búinn að fá martraðir síðustu daga út af þessari helvítis dýnu.

Annars er gríðarlega skemmtilegt að lesa commentinn hér fyrir neðan og skora ég nú á Dóra og co að koma með bloggsíðu, einn sá duglegasti commentarinn í bransanum. Ef einhver þorir að reyna við metið hans Baldvins þá hringið þið bara í mig á látið vita af komu ykkar.

Over and out Heimir Akkillesarhæl þriðji


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 10:29:03 / heimirarnason

Helgin

Jæja helgin liðin og Addi Sæ og Balli farnir heim í heiðardalinn. Helgin byrjaði á leik hjá mér á föstudaginn en eins og þið vitið er ég með þessi frægu hælmeiðsli og var því hvíldur. En við náðum jafntefli í ágætis leik. Strákarnir ákvaðu því að vera eina nótt í viðbót í Köben og sjá Arnór setja meðaltalið sitt eða 9 mörk (óstöðvandi strákurinn). Síðan komu drengirnir á laugardaginn og fljótlega fór ég með þá á hinn eina sanna ,,All you can eat” staðinn hér í Silkeborg. Þetta byrjaði með rólegheitum, við fengum þessi risastóru girnilegu svínarif en allt í einu snérist umræðuefnið um metið mitt eða 3 svínarif og meðlæti. Það er óþarfi að eyða mörgum orðum um Adda Sæ hér því hann borðaði eins og algjör wuzz eða 0,75 rif ussss. En the men man þetta kvöldið Balli Þors sem var óstöðvandi og hætti ekki fyrr en 3,5 rif voru kominn niður, örugglega hátt í 2 kg af kjöti,Respect. Elmar og Hlynur vita hvað þetta er mikið og er ég viss um að Hjalti Úrsús yrði í miklum erfiðleikum með að slá þetta met, þó myndi Torfi Ólafs væntanlega fara létt með það. Síðan fór ég með þá út á lífið í Silkeborg og voru strákarnir bara nokkuð ánægðir með down town Silkeborg. Aðeins til að segja eitthvað jákvætt um Adda kallinn þá fórnaði hann sér rosalega um nóttina. Þrátt fyrir lítin bæ þá er endalaus röð í leigubíl til að komast heim. Addi lét nú ekki bjóða sér þetta og labbaði 2 km neðar í götunna henti sér fyrir einhvern leigubíl sem gat ekki annað en stoppað og kom og náði í ykkur þar sem röðin var, vel gert Addi. Sunnudagurinn var síðan bara til að slappa af og tók ég þá í smá kennslutund í minigolfinu. Annars góð helgi og þakka ég ykkur drengir kærlega fyrir komuna.

» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 09:26:01 / heimirarnason

Upphitun

Hér kemur einn stutt færsla. Titilinn heitir upphitun og ástæðan fyrir því er hve ótrúlega leiðinleg upphitun er í mínu liði. Ég ætla að taka nokkur dæmi, síðan ég kom er búið að vera einu sinni fótbolti í upphitun sem er náttúrulega skandall. Jæja þessum frábæru þjálfurum finnst skynsamlegra að hafa upphitun á dýnu og hoppa eða handahlaup eða einhvern andskotann. Öllum fannst þetta helvíti sniðugt fyrstu tvær vikurnar en núna eru menn að vera brjálaðir. Það er mjög líklegt að menn myndu neina þessu í mínu frábæra léttleikandi liði í fyrra Fylki Utd það held ég ekki. Annars gengur boltinn bara ágætlega utan við það að mér tókst loksins að finna ný meiðsli og jú haldið ykkur fast ég er að drepast í hælnum. Ég er verða einn sá mesti ,,cry me a river” í boltanum. Þetta var nóg til þess að þjálfarinn er að spá í að hvíla mig í næsta leik, ekki var ég ánægður með það. Sérstaklega út af því að Baldvin og Addi ætluðu að koma og sjá kallinn í action.

Lífið hér í Silkeborg er samt sem áður alltaf jafn indælt, en versta er að þessi hæl meiðsli eru einnig golfmeiðsli sem er alveg hræðilegt.

Ég keypti mér webcam í gær og spjallaði við Rósu systur og Mörthu á skype. Rósa á einnig webcam þannig að við sjáum hvort annað þegar við erum að spjalla  og ég verð að viðurkenna að þetta er algjör snilld. Mér fannst ég næstum því vera inn í herberginu.  Ég mæli með þessu fyrir þá sem búa erlendis.

Jæja nóg í bili kveðja Homer


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2